Merinóull
Merinóull er fínasta ullin sem til er. Þræðirnir eru svo þunnir að þeir svigna undan þrýstingi frá húðinni í stað þess að stinga, og þess vegna klórar merinó ekki eins og hefðbundin ull.
Hún gerir þrennt sem gerviefni gera ekki. Hún jafnar út hita, svo þú ofhitnar ekki þegar þú reynir á þig og verður ekki kalt þegar þú stoppar. Hún heldur hita þótt hún blotni, ólíkt bómull sem dregur hitann frá þér um leið og hún verður rök. Og hún er náttúrulega lyktarhamlandi, sem þýðir að þú getur verið í sama bolnum dögum saman á ferðalagi.
Þunnu lögin okkar eru 160 g/m2 og eru hugsuð næst húðinni, undir öðrum fatnaði eða eitt og sér yfir t.d. sumarið.
Þyngri flíkurnar í 250 g/m2, eru til að vera yst.