Endurgreiðslustefna

Skilastefna og endurgreiðslur

Lavish ehf.

Síðast uppfært: 16. júní 2026

 

1. Skilafrestur

Þú hefur rétt til að skila vöru innan 30 daga frá því að þú tókst við pöntuninni. Þetta er rýmra en 14 daga lágmarksfresturinn samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga.

2. Skilyrði fyrir skilum

  • Varan skal vera ónotuð og í því ástandi sem hún var við afhendingu.
  • Hafa þarf samband við okkur áður en varan er send til baka.
  • Við biðjum þig að nota upprunalegar umbúðir ef þú átt þær, en það er ekki skilyrði fyrir skilum.

Þér er frjálst að skoða og meðhöndla vöruna eins og þú myndir gera í verslun. Hafi varan verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar og virkni áskiljum við okkur rétt til að draga frá endurgreiðslunni vegna verðrýrnunar.

3. Innsigluð nærföt

Nærföt eru afhent í innsigluðum umbúðum með hreinlætisinnsigli.

Af heilbrigðis- og hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila nærfötum eftir að innsiglið hefur verið rofið.

Sé innsiglið óskert gildir venjulegur 30 daga skilaréttur að fullu.

Þessi undantekning á ekki við ef varan er gölluð, sjá kafla 7.

4. Aðrar vörur sem ekki er hægt að skila

Eftirfarandi er ekki hægt að skila nema varan sé gölluð:

  • Persónumerktar eða sérsniðnar vörur
  • Gjafabréf

5. Hvernig skila á vöru

Hafðu samband á info@lavish.is eða í síma 422 7474 og gefðu upp pöntunarnúmer og ástæðu skilanna. Við sendum þér leiðbeiningar um skilin.

Skil eru afgreidd í gegnum Dropp og sendingarkostnaður vegna skila er þér að kostnaðarlausu, óháð því hvaða afhendingarleið þú valdir upphaflega.

6. Endurgreiðslur

Endurgreitt er með sömu greiðsluleið og notuð var við kaupin.

Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að þú tilkynnir okkur um skilin. Okkur er heimilt að halda greiðslunni þar til varan hefur borist okkur, eða þar til þú hefur sýnt fram á að hún hafi verið send, hvort sem gerist fyrr.

Hafir þú greitt sendingargjald (Pósturinn) við kaupin og skilar pöntuninni í heild er það gjald endurgreitt líka. Sé aðeins hluta pöntunar skilað er sendingargjaldið ekki endurgreitt.

Það getur tekið nokkra virka daga til viðbótar að endurgreiðslan birtist á reikningnum þínum, eftir greiðsluþjónustu þinni.

7. Gallaðar vörur

Ef vara er gölluð átt þú rétt á að kvarta samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Kvörtunarfrestur er tvö ár frá afhendingu, eða fimm ár ef varan er ætluð til að endast verulega lengur en tvö ár. Tilkynna þarf um gallann innan sanngjarns frests frá því að hans varð vart, þó aldrei síðar en tveimur mánuðum eftir það.

Eftir atvikum getur þú átt rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða riftun kaupa.

Hafðu samband á info@lavish.is eða í síma 422 7474 með pöntunarnúmeri, lýsingu á gallanum og ljósmyndum ef hægt er. Sendingarkostnaður vegna gallaðra vara er á okkar kostnað.

Eðlilegt slit. Venjulegt slit, kögglun eða skemmdir sem verða vegna þvottar sem er í ósamræmi við þvottaleiðbeiningar teljast ekki galli.

8. Ágreiningur

Komi upp ágreiningur sem við náum ekki að leysa saman getur þú vísað málinu til kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa. Það hefur ekki áhrif á rétt þinn til að bera málið undir dómstóla.