Sendingarskilmálar

Sendingarstefna

Lavish ehf.

Síðast uppfært: 16. júní 2026

 

1. Afhendingarmöguleikar

Þú velur afhendingarleið og afhendingarstað í greiðsluferlinu:

  • Dropp - afhending í Dropp-box, á afgreiðslustað eða heim að dyrum.
  • Heimsending frá Lavish - við bjóðum uppá útkeyrslu í póstnúmerum 245, 246, 250 og 251.
  • Pósturinn - afhending í gegnum póstkerfið.

2. Sendingarkostnaður

  • Dropp: frítt á allar pantanir, óháð upphæð.
  • Heimsending frá Lavish: frítt á allar pantanir í póstnúmer 245, 246, 250 og 251.
  • Pósturinn: gjald samkvæmt gjaldskrá Pósturins. Upphæðin reiknast og birtist í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir pöntunina.

3. Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 1 til 3 virkir dagar eftir að pöntun hefur verið afgreidd. Pantanir sem berast á virkum dögum eru yfirleitt afgreiddar innan 1 til 2 virkra daga.

Afhendingartími getur verið lengri á háannatímum, svo sem í kringum hátíðir.

4. Rakning sendingar

Þegar pöntun hefur verið send með Dropp eða Póstinum færðu tölvupóst með rakningarnúmeri svo þú getir fylgst með sendingunni hjá viðkomandi flutningsaðila. Þegar um heimsendingu frá Lavish er að ræða höfum við samband við þig beint til að ganga frá afhendingu.

5. Vandamál við afhendingu

Ef þú hefur ekki fengið sendinguna innan áætlaðs afhendingartíma skaltu hafa samband við okkur á info@lavish.is eða í síma 422 7474 og við könnum málið.

6. Skil

Upplýsingar um skil og endurgreiðslur er að finna í skilastefnu okkar í vefversluninni. Skil eru þér að kostnaðarlausu.