Um okkur

Eftir að hafa kynnst vörum frá menique fannst okkur synd að þetta væri ekki aðgengilegra á Íslandi. Þar með var stokkið af stað og hér erum við í dag.

Ýmislegt er á teikniborðinu og munum við kynna fleiri framleiðendur og meira vöruúrval á næstu vikum. En markmiðið í dag er fyrst og fremst kynning á vörum frá menique.

Samskiptin við þau hjá menique hafa verið einstaklega góð og gengur vel að fá vörur til landsins. Allur lager er og verður á Íslandi til að tryggja sem styðstan afgreiðslutíma.

menique er fyrirtæki í Litháen með mikinn metnað fyrir að framleiða vandaðar vörur úr bestu fáanlegum hráefnum. Það sem heillaði mest við vörurnar var hvað þær voru mjúkar, mest kom þó á óvart hvað merino nærbuxur eru klárlega málið. Það voru efasemdir með að ganga í ullarbrók, en það var fljótt að breytast. Virkilega mjúkar og bara flottar. Svo væri eflaust hægt að vera í þeim í nokkrar vikur og þær mundu haldast ferskar. (Það hefur svosem ekki verið látið á það reyna og alls ekki mælt með því.) Langir og erfiðir vinnudagar hafa allavega ekki mikil áhrif, og sama gildir um allan fatnaðinn sem er úr 100% merinoull.

Það virðist vera satt sem sagt um merinóull að hún sé hamlandi bæði fyrir lykt og bakteríum.

Eigendur menique eru ákveðnir og varan er alltaf í forgrunni. Þeir fylgja eftir öllu framleiðsluferlinu og heimsækja ytri aðila reglulega til að tryggja að staðlar séu haldnir, ekki bara á blaði heldur í raun. Ullin kemur að mestu frá Ástralíu þar sem kindurnar ganga frjálsar á víðlendum bújörðum og bændurnir fylgja ströngustu kröfum um velferð dýra. Framleiðslan sjálf fer fram á einum stað í Litháen, knúin sólarorku. Reynt er eftir bestu getu að nýta allt efni og er mest allur afskurður úr framleiðslunni notaður í smærri hluti.

Þeir hafa komið sér vel fyrir í Evrópu og fá mikið lof þaðan. Nú eru þeir að brjótast inn á bandaríkja og kínamarkað, við horfum á þetta og sjáum fyrirtæki með mikinn metnað sem er stórhuga.

Við bjóðum þessar vörur eingöngu í netsölu. Það er meðvituð ákvörðun sem heldur kostnaði niðri og gerir okkur kleift að bjóða betra verð. En það þýðir ekki að þú sért ein/n með spurningarnar þínar, við erum til staðar í síma og í gegnum síðuna, svörum fljótt og aðstoðum eins mikið og þarf. Ef eitthvað er ekki rétt, stærðin passar ekki eða varan er ekki það sem þú bjóst við, þá eru skilin einföld og sanngjörn.

Við trúum á þessar vörur. Það er ástæðan fyrir því að við viljum seljum þær.


Hvað aðrir segja um menique:

"2nd purchase from Menique and I am so satisfied with the quality!"

"My kiddo really likes the base layer, great fit and quality."

"The best merino wool bra on the market, even better than the ones from other big brands."

"I ordered the set for a camping trip... We were in an unheated cabin with temps down to the 20's and these kept me toasty warm."