Fylgihlutir
Húfur, hálskragar, hanskar, lambhúshettur og ennisbönd úr merinó, bambus og kasmír. Þetta eru flíkurnar sem ráða því hvort þér verði kalt eða ekki, því hiti tapast fyrst um höfuð, háls og hendur.
Merinóull heldur hita þótt hún blotni, andar vel svo þú ofhitnar ekki undir hjálmi eða húfu, og er náttúrulega lyktarhamlandi. Bambus er svalari viðkomu og hentar viðkvæmri húð sérstaklega vel. Kasmírblandan er mýksta og hlýjasta lagið sem við bjóðum.
Þunnu lögin okkar eru hönnuð til að passa undir hjálm, húfu eða hettu án þess að þrengja að.
Þau þykkari eru til að vera yst.